29.5.07

Gullbrárduld

Ef í ökkla er of lítið og í eyra er of mikið, hvað er þá passlegt?

28.5.07

Hliðrunarþversögn

Ef vond myndlíking fellur úr fjaðurstaf á auða síðu, kemur þá ljóð?

27.5.07

Peningaeyðsla

Á Þingvöllum er hver pollur glitrandi af klinki. Er þetta birtingarmynd ofþenslu í hagkerfinu? Kunna Íslendingar ekki að fara með peninga?

Ég er hættur að drekka kók

Það er kominn tími til að hætta að eyða heilsu og peningum í þetta ömurlega drasl, sem ég hef verið háður árum saman. Þeir sem sjá mig drekka kók eru því vinsamlega beðnir um að taka það af mér og minna mig á þetta heit. Í staðinn ætla ég að leyfa mér 2-3 kaffibolla á dag, en ég þigg ábendingar um drykki sem fara vel með góðum mat í staðinn fyrir kók.

26.5.07

Tvífarar dagsins

Íslenski bærinn Akureyri, með norðlægustu bæjum af sinni stærð ...

... og Ushuaia í Argentínu, ein suðlægasta borg heims. Ég fann myndirnar á YNTHERNETINU!!! Þetta virðast alls ekki ólíkir staðir og gaman væri að vita hvort lesendur kunna einhverjar skemmtilegar sögur af rúntinum í Ushuaia. Þeir gleggri taka þó eftir því að ekki er ský á himni fyrir norðan og mun snjóléttara, þó að Akureyri sé um það bil tíu gráðum fjær miðbaug.

25.5.07

Aðeins hinir hæfustu lifa af

Við lifum í hörðum heimi. Reyndar var ástandið verra fyrr á öldum, þegar bókstaflega ekkert var í sjónvarpinu í heilan mánuð samfleytt á hverju ári og matarmenning Íslendinga einskorðaðist við nautahakk og soðnar kartöflur, kjötbollur og soðnar kartöflur og soðna ýsu og soðnar kartöflur. Í dag erum við Íslendingar orðnir málsmetandi aðilar í samfélagi þjóðanna og kippum okkur ekki upp við að borða framandi mat eins og sushi með soðnum kartöflum. Sjálf höfum við lagt kokkteilsósuna af mörkum til alheimsmatarsamfélagsins. Geri aðrir betur.

En þetta var nú smá matartengdur útúrdúr. Staðreyndin er sú að þrátt fyrir öll okkar veraldlegu gæði og siðmenningu erum við ennþá villidýr sem berjast við hvert annað fyrir tilverurétti sínum og það kemur vel fram á skjánum. Sú kenning Charles Darwin að hinir hæfustu lifi af er orðin yfirþyrmandi í sjónvarpsþáttum. Það hefur verið vitað síðan á steinöld að hinir sætustu lifa af, þannig að það er tilvalið og klassískt að sýna fegurðarsamkeppni í sjónvarpinu. Á síðari árum höfum við fengið þætti eins og Survivor, America´s Next Top Model, American Idol, Big Brother, So You Think You Can Dance?, Project Runway og The Apprentice, sem snúast allir um að útrýma hinum keppendunum og standa einn eftir. Enginn veit hins vegar hvernig hárið á Donald Trump hefur lifað af.

Sjálfur er ég með hugmynd að raunveruleikasjónvarpsþætti í anda Darwins sem ég held að gæti orðið æsilegt sjónvarpsefni, svo æsilegt að ég myndi ekki einu sinni þora að horfa á. Hann myndi heita “Karaoke Survivor”, eða “Karókí til hinsta manns”, og gengi í stuttu máli út á að þrjátíu keppendur yrðu læstir inni í sjónvarpssal með karókítæki og skiptust á að syngja diskólagið “I Will Survive” þangað til aðeins einn væri eftir uppistandandi. Hann yrði síðan að sjálfsögðu beðinn um að syngja sigurlagið einu sinni í viðbót.

21.5.07

Orð dagsins

Svínafiðrildi.

20.5.07

Hergé 100 ára

Bækurnar um Tinna hafa notið gríðar­legra vinsælda meðal bæði barna og fullorðinna um allan heim enda aðgengilegar og skemmtilegar. Sá heimur sem birtist í sögunum er hins vegar svo fjölbreytilegur og djúpur að grúskarar í bókmennta- og menningarfræðum hafa fundið þar gjöfulan akur fyrir sínar rannsóknir.

Georges verður Hergé, höfundur Tinna

Hergé, sem hét réttu nafni Georges Prosper Remi, fæddist hinn 22. maí 1907 í Brussel. Hann hlaut nær enga formlega menntun í myndlist en var síteiknandi frá unga aldri, ekki síst myndir af þýsku hermönnunum sem hernámu land hans í fyrri heimsstyrjöldinni. Georges fann sér fljótt starf sem teiknari og bjó sér til listamannsnafnið Hergé, sem er dregið af framburðinum á RG, semsé fangamarki hans afturábak.
Tinni birtist fyrst árið 1929 í Le Petit Vingtième, sem var vikulegt blað fyrir börn sem fylgdi kaþólska dagblaðinu Le Vingtième Siècle (Tuttugasta öldin). Þar var Tinni sýndur sem fréttaritari blaðsins og hét myndaflokkurinn „Tinni í landi Sovétmanna“. Í sögunni var látið eins og blaðamaðurinn ungi hefði tekið myndirnar sjálfur, jafnvel þegar þær sýndu hann sjálfan við störf eða á flótta undan illvirkjum. Pólitískt inntak sögunnar var óumdeilanlegt og markmiðið var einfalt: að sýna skuggahliðar sovét­kerfisins. Síðar gagnrýndi Hergé reyndar bandaríska skyndimenningu harkalega í bókinni Tinni í Ameríku.
Næst skrifaði Hergé um ævintýri Tinna í Kongó, en sú saga varð síðar alræmd vegna úreltra viðhorfa til nýlendustefnu og samskipta kynþátta. Frægasta dæmið um það er þegar Tinni bregður sér í hlutverk kennara og tilkynnir börnunum í Kongó að í dag ætli þau að læra um landið sitt: Belgíu! Í Kolafarminum, sem kom út árið 1958 og fjallar um þrælahald, er áhugavert að svertingjar Hergés hafa lítið breyst: þeir eru bestu skinn en skelfilega treggáfaðir og það er á ábyrgð hvítu mannanna að sjá til þess að þeir lendi ekki í hörmungum, sem eru merkilegt nokk þrældómur í þessu tilfelli.

Besti vinurinn Tsjang

Þegar Hergé lýsti því yfir að næsta ævintýri Tinna á eftir Kongóferðinni myndi eiga sér stað í Austurlöndum fjær skrifaði honum prestur, Faðir Gosset, sem þjónaði kínverskum stúdentum við Háskólann í Leuven. Gosset hvatti Hergé til að fara að öllu með gát í lýsingum sínum á kínversku þjóðinni, ekki síst þar sem hann ætti marga dygga aðdáendur þar á meðal.
Úr varð að Gosset kynnti Hergé fyrir ungum nema í höggmyndalist, Tsjang Tsjong Jen, sem varð fljótlega góður vinur Hergés og kynnti fyrir honum fjölbreytileika kínverskrar menningar og lista, ekki síst myndlistar og leturs. Tsjang varð persóna í bókinni Blái lótusinn (1935), en í henni skeggræða hann og Tinni um gagnkvæma fordóma þjóðanna og komast að því að Kínverjar og Evrópumenn eigi að vera vinir. Japanarnir í bókinni eru hins vegar allir hrottar.
Karakterinn Tsjang kom aftur við sögu aldarfjórðungi síðar í bókinni Tinni í Tíbet (1960), sem Hergé byggði að hluta á martröðum sínum þar sem allt var hvítt. Það var svo eins og við manninn mælt að þegar vinnu við bókina lauk hurfu martraðirnar.

Heimsstyrjöld og álitshnekkir

Í seinni heimsstyrjöldinni hernámu Þjóðverjar Belgíu aftur og Hergé sá enga ástæðu til að sinna ekki vinnu sinni undir stjórn þeirra frekar en hver annar iðnaðarmaður. Hann sat lengi vel undir gagnrýni fyrir að hafa verið samverkamaður nasista en skrifaði sig út úr samviskubitinu með ýmsu móti. Nefna má að fúlmennið Rassópúlos, sem er staðalmynd peningagráðugs gyðings þrátt fyrir að vera grískur að nafninu til, breyttist í sögunum sem komu eftir stríð og fór meðal annars í glæpastarfsemi með nasistum þannig að hann gat ekki lengur talist birtingarmynd gyðingahaturs.
Með tímanum var Hergé þó fyrirgefið, enda vildu allir fá fleiri Tinnabækur. Fyrirtækið í kringum Tinna óx og á hátindi ferils Hergés var hann með lið teiknara til að sjá um handavinnuna meðan hann einbeitti sér að því að gæða sögurnar enn meiri dýpt.

Síðari árin

Þegar Hergé fór að reskjast tók að líða lengri tími milli bókanna. Fimm ár liðu milli Vandræða Vaílu Veinólínó (1963) og Flugrásar 714 til Sydney, og síðan átta ár þar til síðasta bókin, Tinni og Pikkarónarnir, kom út árið 1976. Hugsjónir allar höfðu þá að mestu leyti dofnað og vinskapur aðalpersónanna og Tinni, sem hafði fyrr á árum oft lagt sig í hættu við að verja lítilmagnann, lét sér nægja að horfa niður á fátækrahverfin í bananalýðveldinu San Teódóros úr júmbóþotu á leið sinni heim í evrópsk þægindi. Hergé, sem þá var skilinn við eiginkonu sína og var barnlaus, lést úr hvítblæði árið 1983.

Skrautlegir karakterar

Eitt af því sem stuðlað hefur að vinsældum bókanna er skrautlegt persónugalleríið. Þar fer fremstur í flokki hinn óforbetranlegi Kolbeinn kafteinn. Hann birtist okkur fyrst í Krabbanum með gylltu klærnar sem forfallin fyllibytta sem er iðulega nálægt því að steypa sjálfum sér og öðrum í glötun með ótrúlega óábyrgri hegðun. Svo hrollvekjandi er hann í alkóhólismanum að meira að segja Tinni fær um það martraðir. Með tímanum verður Kolbeinn þó sífellt virðulegri; er að lokum orðinn húsráðandi á herragarðinum Myllusetri og notar einglyrni eins og forríkur spjátrungur. Áfengisfíknin er honum þó reglulega fjötur um fót og í síðustu bókinni, Tinni og Pikkarónarnir, byrlar hinn utangátta Prófessor Vandráður, sem oftar en ekki ber ábyrgð á ævintýrum þeirra félaga, Kolbeini lyf sem gerir menn algjörlega fráhverfa áfengi. Það kallar Kolbeinn „níðingslega árás á persónufrelsi einstaklingsins“. Munnsöfnuður Kolbeins er eitt af því sem íslenskir aðdáendur Tinnabókanna kunna vel að meta, enda íslenskar þýðingar Þorsteins Thorarensen og Lofts Guðmundssonar einstaklega vel heppnaðar.
Meðal annarra eftirminnilegra persóna má nefna tvíburaspæjarana seinheppnu Skafta og Skapta, sem byggðir eru á föður Hergés og tvíburabróður hans. Þá er óráðlegt að gleyma óperusöngkonunni Vaílu Veinólínó, Næturgalanum frá Mílanó, sem syngur „Ég hlæ, því ég er svo mjó“ þannig að glös springa og hefur mikinn hug á að giftast Kolbeini. Reyndar má benda á að hún er eina konan sem kemur við sögu í fleiri en einni Tinnabók, og sú eina sem hefur einhver áhrif á framvindu sögunnar. Fulltrúi lágkúrulegrar millistéttar er hinn ótrúlega uppáþrengjandi Flosi Fífldal, sem ekkert virðist skilja en er alltaf gríðarlega hress og alltaf að reyna að selja eitthvað.
Ekki má gleyma dyggasta félaga Tinna, terrier-hundinum Tobba sem fylgir honum hvert fótmál og leggur sitt af mörkum til að gleðja yngstu lesendurna, gjarnan með hvössum athugasemdum um það sem fram fer.
Nokkur illmenni bókanna koma síðan ítrekað við sögu; hinn fyrrnefndi nefstóri og útsmogni Rassópúlos, illgjarni vísindamaðurinn dr. Muller og svo auðvitað skuggabaldur Kolbeins kafteins, Hörður skipstjóri.

Aðalpersónan

Tinni sjálfur er nokkurs konar eyðieyja í hafsjó skrautlegra karaktera, en var byggður á bróður Hergés, Paul Remi, sem var yfirmaður í belgíska hernum. Tinni virðist laus við allar líkamlegar fýsnir og þrátt fyrir að vera titlaður blaðamaður sést hann nær aldrei skrifa nokkurn skapaðan hlut. Hins vegar er hann öllum öðrum fremri í að beita rökhugsun og leysa hvers konar gátur, sem yfrið nóg er af í bókunum. Hergé var sjálfur liðtækur í hvers konar heilaleikfimi og var kallaður „forvitni refurinn“ sem ungur drengur í skátunum.

Ævintýri um allan heim

Ævintýri Tinna teygja sig út um víðan völl, allt frá undirdjúpum hafsins í Fjársjóði Rögnvaldar rauða og Leyndardómi einhyrningsins og upp í himingeiminn í Í myrkum mánafjöllum. Tinni er fyrsti maðurinn til að stíga fæti á tunglið, og það fimmtán árum á undan Neil Armstrong. Strax í næstu bók, Leynivopninu, reynir hann að fara huldu höfði í Austur-Evrópuríkinu Bordúríu. Hann fer til Kína, Afríku og Ameríku og kemur meira að segja við á Akureyri í Dularfullu stjörnunni. Hann glímir við landamæradeilur í grannríkjunum Sýldavíu og Bordúríu og aðstoðar vin sinn Alkasar við byltingu í Suður-Ameríkuríkinu San Teódóros. Þá má benda á að ein bókin, Flugrás 714 til Sydney, gerist á eyðieyju í Kyrrahafinu þar sem flugvél hefur hrapað og alls konar furðulegir hlutir eiga sér stað. Athyglisvert er að í seinni bókunum velur Hergé að láta sögurnar gerast á ímynduðum stöðum, ólíkt því sem gerist í fyrstu bókunum þar sem lönd og borgir heita sínum réttu nöfnum. Hugsanlega spilar pólitík eitthvað inn í það en einnig meiri víðsýni og meðvitund Hergés sjálfs.

Spegill tuttugustu aldarinnar

Vel fer á því að ævintýri Tinna, sem fyrst birtust í riti kenndu við tuttugustu öldina, endurspegli hana jafn vel og raun ber vitni. Tinni er holdgervingur Vesturlanda á tuttugustu öldinni; fullviss um eigin yfirburði í fyrstu en eykst skilningur á fjölbreytileika mannlífs á jörðinni eftir því sem líður á tækniöld. Engan veginn er þó séð fyrir endann á vinsældum hans þótt 21. öldin sé gengin í garð. Leikstjórarnir Steven Spielberg og Peter Jackson hyggjast nú hvor um sig leikstýra mynd um Tinna og er viðbúið að hetjan unga með ljósa toppinn slái í gegn enn á ný.


Heimildir - Tom McCarthy: Tintin and the Secret of Literature, Wikipedia.

18.5.07

Vægi atkvæða

Hugsum okkur að í einu kjördæmi landsins væri kjörsókn aðeins brot af því sem hún væri annars staðar, segjum tíu prósent þar en sjötíu til áttatíu prósent annars staðar. Það væri þá mjög skrítið að svipað margir þingmenn kæmu úr því kjördæmi og hinum. Þetta er jaðardæmi en sýnir að mínu mati hugsanlega skekkju í kosningakerfinu. Mælir eitthvað gegn því að fjöldi þingmanna í hverju kjördæmi fari eftir fjölda greiddra atkvæða, sem sagt íbúafjölda á kjörskrá sinnum kjörsókn? Það myndi væntanlega jafna fjölda atkvæða á bak við hvern þingmann.

17.5.07

Ein þjóð - ein stjórn - einn valkostur

Undanfarið hafa verið gerðar kannanir á því hvaða ríkisstjórn fólk vilji, fyrir utan þessa á laugardaginn sem kallast alþingiskosningar. Þessar kannanir eru einskis nýtar.

Fólki er gefinn einn kostur, sem er hlægileg smækkun á raunverulegum möguleikum. Til dæmis notaði einhver (minnir að það hafi verið Björn Bjarnason en er ekki viss) það um daginn sem einhvers konar rök eða mælskubragð að aðeins tvö prósent kosningabærra landsmanna vildu Kaffibandalagið, þ.e. hugsanlega ríkisstjórn Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslyndra. Þetta finnst sumum ekkert athugavert af því að þetta kom fram í könnun.

En við hverju býst fólk? Það má nefna einn möguleika. Er óskaríkisstjórn þeirra sem kjósa Samfylkinguna með VG og Frjálslyndum? Er óskaríkistjórn kjósenda VG með Samfylkingu og Frjálslyndum? Er óskaríkisstjórn kjósenda Frjálslynda flokksins með Samfylkingu og VG? Þetta eru miðlægur jafnaðarmannaflokkur, vinstriflokkur og ... eitthvað sem ég kann ekki að skilgreina almennilega, afturhaldssinnaður þjóðernisflokkur var ein uppástungan. Þessir flokkar eiga ekkert sérstaklega margt sameiginlegt annað en stjórnarandstöðuna. Samfylkingarfólk vill margt stjórn með Sjálfstæðisflokknum, Vinstri græn vildu helst í bjartsýni fá tveggja flokka vinstristjórn og Frjálslyndir sennilega eitthvað annað en tvo vinstriflokka að nafninu til.

Viltu vinna milljón? Ég vil það gjarnan. Það þýðir samt ekki að ég vilji ekki vinna hálfa milljón. Eða fimm milljónir. Eða bara góðan kaupréttarsamning.

16.5.07

Cherchez la femme

Pauvre petit Nicolas. C'est triste.

11.5.07

Eiríkur Hauksson Schrödingers

Erwin Schrödinger hét maður. Hann var austurrískur eðlisfræðingur og nóbelsverðlaunahafi sem vann sín helstu afrek á sviði skammtafræðinnar á fyrri hluta síðustu aldar og er minnst nú á dögum fyrir hugsunartilraun. Ímyndum okkur einangrað hólf sem geymir kött og agnarlítinn bút af geislavirku efni. Helmingslíkur eru á að ein eða fleiri frumeindir af efninu hafi klofnað þegar klukkustund er liðin, en það drepur köttinn. Hins vegar ber að taka með í reikninginn að hólfið er lokað og engin leið er að komast að því hvort þetta gerðist eða ekki nema hafa áhrif á framgang tilraunarinnar. Samkvæmt einni túlkun skammtafræðinnar er raunveruleikinn tvíklofinn og kötturinn er lifandi og dauður í senn, hversu furðulegt sem það kann að virðast.
Þegar þessi pistill er ritaður er fimmtudagur og enn ekki komið í ljós hvernig fer hjá Eiríki Haukssyni og leðurfrakkanum í undanúrslitum Eurovision-söngvakeppninnar. Þegar lesendur fá blaðið í hendurnar er hins vegar kominn föstudagur og á allra vitorði hvort Eiríkur komst í úrslitakeppnina eða ekki.
Möguleikarnir eru tveir. Annars vegar hefur Eiríkur komist áfram, þökk sé sprúðlandi karlmennsku og kynþokka, og Evrópa öll er heilluð af kraftmiklum flutningi hans á hinu frábæra rokklagi Sveins Rúnars Sigurðssonar, Valentine Lost. Skotheldur pakki. Íslenska þjóðin er alsæl en ekki sérstaklega undrandi, enda höfðu veðbankar spáð framlagi Íslands góðu gengi. Úrslitakvöldið lofar góðu og allir eru búnir að birgja sig upp af grillmat og búsi svo þeir geti fagnað fyrsta sigri Íslands í Júróvisjón og góðum úrslitum í alþingiskosningunum strax á eftir. Hins vegar var Eiríki hafnað af afturhaldssömum austur-evrópskum og balkönskum smásálum sem fatta bara ekki góða músík. En það skiptir engu máli því það er ekkert að marka þessa keppni. Það að láta kjósa besta lag í Evrópu er auðvitað jafn fáránlegt og ímyndaður köttur sem er fimmtíu prósent lifandi og fimmtíu prósent dauður.

9.5.07

Saga úr Vesturbænum

Fyrir skemmstu ók ég framhjá Hótel Sögu, austanmegin. Sá ég þar aftan á hjólreiðamann sem var með þennan líka dúndrandi fína iðnaðarmann. Mér er næst að telja að hann hafi náð í það minnsta fjórðungi af heildargjánni fram að spöng, jafnvel nær þriðjungi. Ég greip samstundis til símans míns, sem er einnig tækifærismyndavél, slökkti á græjunum til að styggja ekki viðfangið og skrúfaði niður rúðuna. Síðan miðaði ég eins vandlega og mér var unnt - en gætti þess í hvívetna að hafa alla aðgát við aksturinn - og smellti af. Skilyrði á staðnum til að meta gæði myndarinnar voru ekki með besta móti og tæknilegir örðugleikar komu í veg fyrir að ég næði að taka aðra. Örlögin höguðu því þannig að ég fór fram úr hjólreiðamanninum nálægt bílaplaninu við Þjóðarbókhlöðuna og beygði til vinstri í átt að Birkimel. Ég fór ekki hraðar en svo að ég sá vel framan í manninn þar sem hann nálgaðist Bókhlöðuna og tók eftir því að hann var afar glaður í bragði. Það þótti mér vænt um.
Svo fann ég mér stæði og lagði bílnum. Við nánari athugun virtist mér myndin ekki hafa heppnast vel þó að hugsanlega megi með góðum vilja greina eitthvað af því sem ég reyndi að skjalfesta.Vissulega hefði ég viljað ná betri mynd. En ég sá þó þennan ljómandi fína iðnaðarmann eigin augum, á kyrrum og mildum maímorgni í Vesturbænum. Fyrir það er ég þakklátur.

8.5.07

Spurning

Er „baunateljari“ lögverndað starfsheiti?

4.5.07

Someone to Watch Over Me

Subject:
spam report: [ 1 messages quarantined from Thu, 03 May 2007 03:30:01 to Fri, 04 May 2007 03:30:01]

Lækningin og meinið, meinið og lækningin. Mærin um miðja nótt.

3.5.07

Assimílering eða dauði

„I didn't want to be awakened by some man with a bugle. I didn't want to sleep in a barracks with a bunch of healthy sex-mad football-loving overfed wise-cracking masturbating lovable frightened pink farting mother-struck modest basketball-playing American boys that I would have to be friendly with, that I would have to get drunk with on leave, that I would have to lay on my back with and listen to dozens of unfunny, obvious, dirty jokes. I didn't want their itchy blankets or their itchy uniforms or their itchy humanity. I didn't want to shit in the same place or piss in the same place or share the same whore. I didn't want to see their toenails or read their letters from home. I didn't want to watch their assholes bobbing in front of me in close formation, I didn't want to make friends, I didn't want to make enemies, I just didn't want them or it or the thing. To kill or be killed hardly mattered.“

Þessi orð skáldsins Charles Bukowski komu mér í hug í röðinni í mötuneytinu áðan. Allt pakkað af fólki!!! Eru ekki allir hressir?!! Dugar ekkert annað!!! Það er bara allt að verða vitlaust hérna!!!