16.3.05

bez.com

Ég gat nú ekki annað en flissað eins og fífl þegar ég fann þetta á netinu.

14.3.05

Junky

Greit... búinn að hreyfa mig og éta góðan skít á hverjum einasta degi í vikunni, eins og flesta daga undanfarnar vikur. Svo er löggildur leti- og ómennskudagur í gær og ég drekk kók og ét nammi og ligg í leti af skyldurækni. Svo í dag líður mér eins og ég hafi drukkið viskíflösku og sprautað mig með tekíla á eftir. Ergó orðinn háður því að hreyfa mig sjö daga í viku. Og má ekki hreyfa mig af viti í mánuð þegar ég verð búinn að láta skera í nefið á mér í endann á mánuðinum. Another fine mess I've gotten myself into.