25.2.06

Flogg

Orðið blog er dregið af "web log". Web þýðir vefur. Væri þess vegna ekki ágætt skref í átt til íslenskunar að tala frekar um flogg? Hér er svo mynd af dauðum hesti.

22.2.06

Hjátrú

Ég var spurður í vinnunni í gær hvort ég væri hjátrúarfullur. Ég svaraði neitandi, mér þætti það boða ógæfu. Svona kemur maður sér í vandræði.