Borg syndanna
Akureyringum fyrrverandi og núverandi bendi ég á
þessa grein og þá bráðskemmtilegu túlkun á nafni Alþýðuhússins/Húss aldraðra sem þar kemur fram. Sannarlega hafa margir haft á orði að Akureyri sé nokkurs konar Las Vegas norðursins og get ég ekki neitað því að sú samlíking var mér jafnan ofarlega í huga á uppvaxtarárum mínum, ekki síst þegar ég fór á dansnámskeið í Allanum snemma á níunda áratug síðustu aldar. Það var rosalegt.
Sexual Chocolate
SEXUAL CHOCOLATE!
Staðreynd
John Wayne Gacy var einu sinni útibússtjóri hjá KFC.
Afturhvarf og endurnýjun
Nammibarinn í Hagkaupum í Kringlunni hefur á ný hafið sölu á lakkríspinnum. Þetta er því mikill gleði- og fyrirgefningardagur. Næst er að byrja aftur með Southern Fried Chicken og verður endurkoma fyrirtækisins þá fullkomnuð. Þá tók íþróttabúnaður heimilisins miklum framförum í dag þegar ég tók þá frábæru ákvörðun að kaupa mér legghlífar, sokka og Adidas Predator-takkaskó. Ég er glaður.
P.S. Látið lakkríspinnana mína í friði.
Endurfundir
Gaman væri ef persónur og leikendur í Monk og Grey's Anatomy leiddu saman hesta sína. Þá yrði sannarlega smyrsl í körfunni.