16.6.08

Afturhvarf og endurnýjun

Nammibarinn í Hagkaupum í Kringlunni hefur á ný hafið sölu á lakkríspinnum. Þetta er því mikill gleði- og fyrirgefningardagur. Næst er að byrja aftur með Southern Fried Chicken og verður endurkoma fyrirtækisins þá fullkomnuð. Þá tók íþróttabúnaður heimilisins miklum framförum í dag þegar ég tók þá frábæru ákvörðun að kaupa mér legghlífar, sokka og Adidas Predator-takkaskó. Ég er glaður.

P.S. Látið lakkríspinnana mína í friði.