9.2.05

Morgunnapalminn

Búinn að þýða frá grunni samantekt á doktorsritgerð og þá er spurningin hvort ég kemst út úr húsi fyrir sjö til að fara í innilaugina í Laugardalnum. Ef þetta er ekki heilsteikt líf þá heiti ég Raverzum Travitz in the Turgitz Kurbitzen Rexumspól. Og ef ég drep ekki foreldra mína í kvöld með brjálæðislega klúðruðu lambi að marokkóskum hætti ætla ég að senda Óla grís tillögu um að ég fái fálkaorðuna við næsta tækifæri, helst bara í afmælisgjöf. Snoochie noochies!

P.S. Hvað voru menn að spá þegar þeir gerðu þessa síðu?? Þokkalega aðlaðandi pleis. Sannkölluð endastöð.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim