21.1.05

Go, Geri, Go!

Geri "Ginger Spice" Halliwell var alltaf uppáhaldskryddpían mín. Hún hafði einhvern einlægan þokka, bústin og barmfögur, og ekki spillti fyrir sú tilfinning að þarna færi kona sem væri hægt að eiga gefandi samræður við ekki síður en toppklassarekkjubrögð; hún höfðaði með öðrum orðum ekki síður til höfuðs en hreðja og væri verðugt kynferðislegt viðfang gáfumanna (og -kvenna). Það hefur verið frábært að fylgjast með henni uppfylla pótensjalið með glæsilegum sólóferli, en hæfileikar hennar liggja á svo fjölbreyttum sviðum að það var ekki nema von að menn spyrðu: "Hver er eiginlega hin eina sanna Geri?". Til dæmis var það ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með henni þegar hún hafði með góðum stuðningi Robbie vinar síns náð að hrista af sér nokkur aukakíló og gott betur, en þessi kíló höfðu samt bara klætt hana eins og þá sönnu konu sem hún er. Svo sýndi hún á sér alþýðu- og gáfumannahliðina þegar hún lýsti yfir stuðningi við Bretland gjörvallt fyrir heimsmeistarakeppnina í fótbolta hér um árið.

En nú hefur Geri bætt enn einni rósrauðri rósinni í spennt hnappagatið. Tékkið á þessu! Það er auðvitað öllum frjálst að láta sín eigin viðbrögð ráðast af hjartanu, en ég skammast mín ekki fyrir að ljóstra því upp að ég beitti hægri músartakkanum til hins ýtrasta.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim