6.2.05

Geri pt. deux: Geri et Keith dans les bains incompréhensibles d'amour avec le Heinz ont fait des haricots cuire au four

Ahhh... Geri klikkar ekki.

"Geri Halliwell missti af tækifærinu að hitta forseta Austurríkis í Vín á dögunum. Ástæðan var sú að hún fór á klósettið og villtist. Gestgjafinn, Dickie Lugner, sakaði Geri einnig um að fela sig fyrir blaðaljósmyndurum.
"Hún heimtaði að fara einsömul á klósettið en rataði ekki um húsið og villtist. Þetta er stórt hús og það var mikið af gestum. Ætlunin var að taka viðtal við forsetann og Geri saman en við þurftum að hætta við vegna þess að við fundum hana ekki," sagði Lugner. Hann sagði söngkonuna einnig hafa neitað að mæta á blaðamannafund í verslunarmiðstöð sinni.
"Hún faldi sig á bak við súlu og öskraði á fólk að koma ljósmyndurunum í burtu þegar þeir mættu til þess að mynda hana í svörtum Versace-kjól," sagði hann."

Geri gerir mig glaðan. Hún er meiriháttar.

Annars er ég bara í stuði, nema hvað mig langar svo sjúklega að skella mér á trommusetttilboð á fimmtíu þúsund kall að ég veit ekki hvort ég á að stíga í hæhatt- eða bassafótinn. Spurning að ryðja út úr geymslunni og hefja nýtt líf í kjallaranum? Og áður en þið dæmið: Premier. Keith Moon spilaði á Premier. Og Keith Moon er fyrirmynd Dýra í Prúðuleikurunum. Pælið í því. Svo fá þeir aukastig sem vilja pæla í því að Keith Moon var bannaður frá Holiday Inn fyrir lífstíð fyrir að höggva hótelherbergi í spað með exi og keyra Lincoln Continental út í sundlaug sauðdrukkinn klæddur í nunnubúning. Hann var mikilmenni. Þau Geri hefðu átt vel saman.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim