4.1.06

Endless lúð

Settu nafnið þitt í kommentakerfið og…

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
7. Ef þú lest þetta verðurðu að setja þetta á bloggið þitt.

Ég er síðastur með þetta.

12 Ummæli:

Þann 2:56 e.h. , Blogger Magnús sagði...

Homme de Pez:

1. Kvenfólki sem ég þekki finnst þú myndarlegur.
2. Moving með Suede, It's a Wonderful Life.
3. Bjór.
4. Galandi í tölvutíma í Möðró eitthvað um að þú ætlaðir að verða fjöldamorðingi sem legðist á lítil börn.
5. Geðveikislega glaður teiknimyndahestur.
6. Finnst þér þú skrítinn eða venjulegur?

 
Þann 2:58 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Annar

 
Þann 3:11 e.h. , Blogger Magnús sagði...

Óli:

1. Þú ert hár- og skeggvaríerandi.
2. Nallinn.
3. Hrökkbrauð.
4. Heima hjá þér að horfa á myndir og éta snakk, var þá búinn að þekkja þig um skeið en allt rennur saman.
5. Nashyrningur.
6. Er ekki sérkennilegt hvað þú eyðir miklum tíma í að berjast fyrir skoðun sem ætti í eðli sínu ekki að þvælast fyrir manni í lífinu?

 
Þann 3:47 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Jújú, örugglega en ekkert mikið sérkennilegra en áhugamál sem fólk hefur almennt.

 
Þann 12:42 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Pant pant :)
Árný

 
Þann 3:07 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Fjórði!

 
Þann 4:53 e.h. , Blogger Magnús sagði...

Árný:

1. Þú ert harðjaxl.
2. Svampur Sveinsson.
3. Lasagna.
4. Trítlandi (og ég nota það orð ekki af léttúð) í MA, eigandi bíls sem ég heyrði neikvæðar sálir leggja á ráðin um að lykla sakir kveintleika.
5. Íkorni.
6. Kanntu eitthvað í bardagaíþróttum?

 
Þann 4:59 e.h. , Blogger Magnús sagði...

Eygló:

1. Þú ert með mér í minnihlutahópi.
2. Eitthvað af iPodinum sem ég hef ekki fundið ennþá, Annie Hall.
3. Kartöfluflögur og kók.
4. Ég er ískyggilega nálægt því að "plead the fifth" á þetta því það er það sama og hjá Óla. Mjög léleg frammistaða hjá mér en hefur vakið hjá mér meðvitund um hvað ég man lítið yfirhöfuð.
5. Sléttuhundur.
6. Veistu hver pabbi minn er?

 
Þann 3:26 e.h. , Blogger Magnús sagði...

Leiðrétting:

Árný:

2. The White Noise Revisited með The Boo Radleys.

Sorrí.

 
Þann 3:31 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Eitt pant fyrir mig og eitt pant fyrir Högna.

Kv, Fanney

 
Þann 11:15 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ljómandi fín flokkun kvikmynda. Vantar ad sjálfsögdu klámmyndir og hnakka- eda blómavasamyndir.

 
Þann 4:53 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég er að velta því fyrir mér hvaða minnihlutahópi...kemst kannski að því einn daginn.

Já, ég veit ca. hver pabbi þinn er. Tannlæknirinn minn talaði allavega mikið um hann á tímabili...en ég harðneitaði að fara og tala við einhvern Teit þó ég væri (og sé) með fokkings yfirbit!
Flestar vinkonur mínar hafa meira af honum að segja en ég enda var helmingurinn var vopnfirskum unglingum sendur til hans á sínum tíma.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim