2.1.06

Digg

Gleðilegt ár. Hér er bloggnördismi.

7 hlutir sem ég get:

1. Klístrað tuðrunni í sammarann með vinstri
2. Hrist fulla pönnu af fiski og grænmeti þannig að allt blandist og ekkert fari út fyrir
3. Hermt eftir Charles Montgomery Burns
4. Fært þriggja stafa tölu í annað veldi á innan við mínútu
5. Smellt fingrunum þannig að eftir er tekið
6. Straujað skyrtur af alúð og snerpu
7. Spilað riffið í Louie, Louie á píanó

7 hlutir sem ég get ekki:

1. Haldið kjafti
2. Sofnað eða vaknað á skikkanlegum tíma
3. Horft á formúluna
4. Synt skriðsund
5. Troðið
6. Breikdansað
7. Drukkið koníak


7 atriði sem ég segi oft:

1. "... með þvílíkt mannaskítsglott ..."
2. "Eastsii-EEEED!"
3. "Jæja, gömlu drullusokkar!"
4. "Hvað í andskotanum er þetta?!"
5. "Rassmörður!"
6. "Á ég ekki að skella krabba með?"
7. "Djöfuls Lampard grísapungur!"


7 gallar í fari mínu sem ég á erfitt með að forðast:

1. Mannaskítsglott
2. Leti
3. Sóðakjaftur
4. Hálfkæringur
5. Að bora í nefið
6. Að dæma fólk út frá smáatriðum
7. Að borða með puttunum

7 konur sem mér hafa fundist fallegar (fyrir utan maka):

1. Kate Winslet
2. Toni Braxton
3. Tori Amos
4. Debbie Harry
5. Carmen Electra
6. Martina Hingis
7. Janet Leigh

7 hljómsveitir/listamenn sem ég hlusta á og einkenna mig sem manneskju:

1. The Beatles
2. The Jimi Hendrix Experience
3. The Stone Roses
4. The Smiths
5. Joy Division
6. The Velvet Underground
7. David Bowie

7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:

1. Heimsækja Baskaland
2. Læra spænsku
3. Skeina barnabarni
4. Búa í útlöndum
5. Gera útvarpsþátt
6. Læra á trommur
7. Halda partí

2 Ummæli:

Þann 9:22 f.h. , Blogger Ingvar Valgeirsson sagði...

Sæll.
Ég skal ekki trúa því að vel menntaður norðlenskur karlmaður á fertugsaldri hafi ekki haldið partý!
Kveðjur.

 
Þann 10:44 f.h. , Blogger Magnús sagði...

Jújú (eða juju, eins og Keef myndi segja), ég hef haldið partí. En mig langar samt að halda partí. Ef þið skiljið hvað ég meina.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim