7.7.05

Smá öppdeit

Já, humm... síðustu mánuði hef ég ekki nennt að blogga en það hefur helst borið til tíðinda að ég náði mér í frábæra kærustu sem heitir Brynhildur og við eigum von á barni um miðjan janúar. Í millitíðinni getum við vonandi selt íbúðirnar okkar og keypt eina saman og eru þau mál líka komin vel á veg. Svo erum við á leiðinni út til Glasgow í fyrramálið, förum síðan til York og Liverpool og aftur upp til Glasgow/Edinborgar. Tónleikarnir með Lady & Bird voru geðveikir, Duran Duran voru ágætir. Hef ekki geð í mér til að fara á Snoop. Jæja, ég er farinn að búa íbúðina mína undir sölu og redda miðum á Anfield á þriðjudaginn. Eru ekki allir í stuði?

2 Ummæli:

Þann 2:33 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með kærustuna og tilvonandi erfingja :)

 
Þann 1:13 f.h. , Blogger Ingolfur sagði...

Váá!
Til hamingju!

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim