15.9.06

Síðasta lagið

Ég fór að kaupa í matinn. Amerískir dagar í búðinni. Sykrað örbylgjupopp, pitsur með pepperóní og hakki, sírópshúðuð epli á staur. Fánar og verðmiðar alls staðar. Þriggja lítra dunkar af íþróttasafa. Við kassann sá ég að ég hafði ekki keypt neitt amerískt. Harðfiskur, stoðmjólk. Sveppir, jógúrt. Tók einn poka. Á meðan hljómaði Bridge Over Troubled Water. Hlerarnir voru komnir niður þegar ég gekk út.