1.8.06

Innlegg í vestræna poppmenningu

Í dag eru 40 ár síðan brjálæðingurinn Charles Whitman kom sér fyrir með riffilinn sinn í útsýnisturni Texas-háskóla í Austin og hóf skothríð með þeim afleiðingum að 15 manns létu lífið og 31 særðist áður en löggan náði að taka Whitman endanlega úr umferð. Það mætti segja mér að það hafi verið í heitara lagi í Texas þann dag.