Svíðþjóð


Ökuþórinn Ronny Peterson er án efa ástsælasti sonur Almby, sem er úthverfi Örebro. Hann dó hryllilegum dauðdaga þegar kviknaði í Formúlu eitt bifreið hans við árekstur. Þessi stytta af Ronny er í Almby og situr hann á logunum sem standa upp úr bifreiðinni.
Þessi mynd og sú næsta sýna hversu lifandi skoðanaskiptin eru milli stjórnmálaflokkanna og alþýðunnar í hjarta Svíaríkis.
Samkynhneigðir eldri borgarar eru óplægður akur í baráttunni um atkvæðin.
Hér er ég allhress með kaffi um hönd við veitingastað við Prestsgötu í Gamla Stanley í Stokkhólmi.
Að síðustu er hér auglýsing sem ég rakst á í Kristianstad. Ég er ekki sérstaklega sleipur í sænskunni en sýnist stúlkan á myndinni vera útskrifuð úr bandarískum háskóla.
<< Heim