20.2.07

Þessi draumur lá vel við höggi maður

Í nótt dreymdi mig að ég væri að framleiða og/eða leikstýra kvikmynd eftir Fóstbræðrasögu. Hermann Hreiðarsson hafði verið valinn í hlutverk Þorgeirs Hávarssonar og Hilmir Snær Guðnason í hlutverk Þormóðs Kolbrúnarskálds Bessasonar. Næsta skref er að fá fleiri að verkefninu, ekki síst áhættufjárfesta.