25.1.07

Aðsendar greinar

Fjöld er fífla
frónskra valla.
Breiður belgjast
blaðurskjóða.

Gjamma á grásíðum
glákueygir
þvaðra um þjóðar þætti.

Njálgur og njóli
nasir núa.
Desibelum dæla
í röflsins rofabörð.

Innblaðs inntaki
er innhalds vant.
Einrænan ein.

Fáráðsflaumur
úr fjöðrum flæmdur
milljónamergð
mánaðar hvers stykkja.