28.6.06

Meira skop

Vegna fjölda áskorana er hér örstutt sönn gamansaga:

Eitt sinn var haldin meðal samstarfsfólks míns keppni í japönskum söng með vélrænum undirleik. Nokkrum dögum fyrir keppnina innti einn vinnufélagi minn mig eftir því hvort ég hygðist taka þátt. Mælti ég þá að bragði: "Það gæti hugsast, en ekki nema ég drekki nokkra bjóra fyrst. Nemo cantat sobrius, ha ha ha ha ha!"